Fótbolti

Barcelona sýndi styrk sinn

Messi, Neymar og Suarez skoruðu allir í leiknum.
Messi, Neymar og Suarez skoruðu allir í leiknum. vísir/getty
Barcelona skellti Leganés 5-1 í fjórðu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag þar sem Messi, Suarez og Neymar skoruðu allir.

Barcelona tapaði óvænt fyrir nýliðum Deportivo Alavés á heimavelli um síðustu helgi en hefur svarað því með tveimur stórsigrum í röð. Fyrst 7-0 gegn Celtic í Meistaradeildinni og svo nú í dag.

Messi, Suarez og Neymar skoruðu allir í fyrri hálfleik. Messi á 15. mínútu, Suarez á 31. og Neymar mínútu fyrir hálfleik og staðan 3-0 í hálfleik.

Messi skoraði annað mark sitt úr vítaspyrnu á tíundu mínútu seinni hálfleiks og níu mínútum síðar kom Rafinha stórliðinu í 5-0.

Gabriel minnkaði muninn fyrir heimamenn tíu mínútum fyrir leikslok.

Barcelona er með níu stig eftir fjóra leiki. Nýliðar Leganés eru með 4 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×