Barcelona réð ekki við Spanoulis - Olympiacos í úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2012 20:09 Vassilis Spanoulis Mynd/Nordic Photos/Getty
Það verður gríska liðið Olympiacos sem mætir CSKA Moskvu í úrslitaleiknum í Meistaradeild Evrópu í körfubolta, Euroleague, en þetta var ljóst eftir að Olympiacos vann fjögurra stiga sigur á Barcelona, 68-64, í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld. Barcelona-liðið byrjaði leikinn illa og náði sér aldrei almennilega á strik í Tyrklandi í kvöld. Olympiacos komst í 8-0, var 17-11 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með fjögurra stiga forskot í hálfleik. 33-29. Barcelona hélt sér inn í leiknum en tókst aldrei að ná forystunni af Olympiacos sem var með sjö stiga forskot þegar þrjár og hálf mínúta var eftir. Barcelona minnkaði muninn í tvö stig í lokin en Grikkirnir héldu út og unnu góðan sigur. Vassilis Spanoulis átti frábæran leik í liði Olympiacos og réð spænska liðið ekkert við hann. Spanoulis endaði leikinn með 21 stig og 6 stoðsendingar. Georgios Printezis kom honum næstu með 14 stig. Juan Carlos Navarro skoraði 18 stig fyrir Barcelona og Boniface N'Dong var með 10 stig. Olympiacos mætir CSKA Moskvu í úrslitaleiknum á sunnudaginn en áður spila Barcelona og Panathinaikos um þriðja sætið.
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Fleiri fréttir Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Sjá meira