Fótbolti

Barcelona með auðveldan sigur á Athletic

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lionel Messi skoraði í leiknum.
Lionel Messi skoraði í leiknum. Vísir/Getty
Barcelona vann öruggan sigur á Athletic, 3-0, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrni í dag en Barcelona er fyrsta liðið í spænsku deildinni sem fer yfir 100 mörkin í deildarkeppninni.

Paco Alcacer skoraði fyrsta mark leiksins eftir stundarfjórðung en Lionel Messi var búinn að koma Barca í 2-0 þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum.

Aleix Vidal innsiglaði öruggan sigur Barcelona á 67. mínútu þegar hann kom liðinu í 3-0. Barcelona er í öðru sæti deildarinnar, einu stig á eftir Real Madrid, sem á reyndar tvo leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×