Fótbolti

Barcelona í bikarúrslit | Neymar með tvennu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Neymar skoraði tvö mörk fyrir Barcelona á El Madrigal í kvöld.
Neymar skoraði tvö mörk fyrir Barcelona á El Madrigal í kvöld. vísir/getty
Neymar skoraði tvö mörk þegar Barcelona tryggði sér sæti í úrslitaleik spænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Börsungar sóttu þá Villarreal heim í seinni leik liðanna í undanúrslitunum. Lyktir leiksins urðu þær sömu og í fyrri leiknum; 1-3 fyrir Barcelona sem mætir annað hvort Athletic Bilbao eða Espanyol í úrslitaleiknum í lok maí.

Neymar kom Barcelona yfir strax á 3. mínútu á El Madrigal í kvöld eftir sendingu frá Lionel Messi.

Jonathan dos Santos, fyrrverandi leikmaður Barcelona, jafnaði metin fyrir Villarreal sex mínútum fyrir hálfleik og þannig var staðan fram á 73. mínútu þegar Luis Suárez kom Börsungum aftur yfir.

Neymar skoraði svo þriðja mark Barcelona á 88. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf varamannsins Xavi. Lokatölur 1-3, Börsungum í vil.


Tengdar fréttir

Barcelona í ágætum málum eftir fyrri leikinn

Barcelona vann í kvöld 3-1 heimasigur á Villarreal í fyrri undanúrslitaleik liðann í spænska Konungsbikarnum en seinni leikurinn fer síðan fram á heimavelli Villarreal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×