Fótbolti

Barcelona boðar komu Suarez með myndbandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Luis Suarez verður væntanlega í eldlínunni með Barcelona þegar liðið mætir Real Madrid í El Clasico á Spáni á morgun.

Suarez var dæmdur í fjögurra mánuða bann fyrir að bíta Giorgio Chiellini, leikmann Ítalíu, á HM í Brasilíu í sumar. Sá leikur fór fram þann 24. júní og lýkur því banni Suarez með formlegum hætti í dag.

Biðin hefur því verið löng fyrir stuðningsmenn Barcelona en félagið keypti hann frá Liverpool eftir HM í sumar. Félagið boðar komu kappans í leikinn á morgun með myndbandinu sem má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Suárez mætir Real Madrid í fyrsta leik eftir bannið

Fyrsti leikur Luis Suárez eftir að hann hefur lokið fjögurra mánaða keppnisbanni fyrir að bíta Chiellini verður gegn Real Madrid þann 26. október. á meðan fyrsti leikur Alfreðs Finnbogasonar í spænsku deildinni verður gegn SD Eibar í nágrannaslag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×