Fótbolti

Barcelona bætir öðrum Suárez við

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Suárez í leik með Villarreal gegn Liverpool í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.
Suárez í leik með Villarreal gegn Liverpool í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. vísir/getty
Barcelona hefur nýtt sér endursöluákvæði í samningi miðjumannsins Denis Suárez.

Villarreal keypti Suárez af Barcelona síðasta sumar. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Villarreal en í samningnum var ákvæði þess efnis að Barcelona gæti keypt hann til baka fyrir ákveðna upphæð sem og Katalóníuliðið gerði.

Barcelona borgaði 3,25 milljónir evra fyrir hinn 22 ára gamla Suárez sem lék sinn fyrsta landsleik fyrir Spán á þessu ári. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Barcelona.

Suárez var í herbúðum Barcelona tímabilið 2013-14 en lék aðeins með B-liði félagsins. Hann var svo lánaður til Sevilla og vann Evrópudeildina með liðinu vorið 2015.

Suárez er fyrsti leikmaðurinn sem Barcelona kaupir í sumar. Hann verður kynntur til leiks á Nývangi á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×