Fótbolti

Barcelona, Bayern og Juventus öll með fleiri leikmenn en enska úrvalsdeildin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi og Neymar.
Lionel Messi og Neymar. Vísir/EPA
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur gefið út hvaða 40 leikmenn koma til greina í úrvalslið ársins 2015.

Það vekur vissulega athygli að þrjú félög eiga fleiri leikmenn í þessum 40 manna hópi en öll enska úrvalsdeildin til samans.

Það eru nefnilega bara fimm leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni sem koma til greina í lið ársins.

Þetta eru þeir Joe Hart, Sergio Aguero og Kevin De Bruyne hjá Manchester City, Eden Hazard hjá Chelsea og Alexis Sanchez hjá Arsenal. De Bruyne spilaði helminginn af árinu í þýsku deildinni.

Barcelona á flesta leikmenn í þessum hópi eða átta en sex leikmenn koma frá bæði Bayern München og Juventus.

Gareth Bale er eini breski leikmaðurinn fyrir utan Joe Hart sem kemur til greina í úrvalsliðið.

Hér fyrir neðan má sjá leikmennina 40 sem koma til greina í lið ársins hjá UEFA.

Markmenn: Joe Hart (Manchester City), Gianluigi Buffon (Juventus), Manuel Neuer (Bayern München) og Denys Boyko (Dnipro).

Varnarmenn: Leonardo Bonucci (Juventus), David Alaba (Bayern München), Giorgio Chiellini (Juventus), David Luiz (Paris St-Germain), Dani Alves (Barcelona), Thiago Silva (Paris St-Germain), Jerome Boateng (Bayern München), Ricardo Rodriguez (Wolfsburg), Javier Mascherano (Barcelona), Diego Godin (Atletico Madrid), Gerard Pique (Barcelona) og Sergio Ramos (Real Madrid).

Miðjumenn: Grzegorz Krychowiak (Sevilla), Kevin De Bruyne (Manchester City), Ivan Rakitic (Barcelona), Arturo Vidal (Bayern München), Eden Hazard (Chelsea), Claudio Marchisio (Juventus), Marco Verratti (Paris St-Germain), Yevhen Konoplyanka (Sevilla), Andres Iniesta (Barcelona), James Rodriguez (Real Madrid), Paul Pogba (Juventus) og Hakan Calhanoglu (Bayer Leverkusen).

Framherjar: Gareth Bale (Real Madrid), Thomas Muller (Bayern München), Lionel Messi (Barcelona), Zlatan Ibrahimovic (Paris St-Germain), Robert Lewandowski (Bayern München), Neymar (Barcelona), Antoine Griezmann (Atletico Madrid), Alvaro Morata (Juventus), Sergio Aguero (Manchester City), Luis Suarez (Barcelona), Alexis Sanchez (Arsenal) og Cristiano Ronaldo (Real Madrid).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×