Körfubolti

Baráttan um LeBron: Spilar hann með Melo og Bosh í Phoenix?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
LeBron James vill ríflega 20 milljónir dala í laun fyrir fyrsta árið hjá nýju liði.
LeBron James vill ríflega 20 milljónir dala í laun fyrir fyrsta árið hjá nýju liði. vísir/getty
Baráttan um þjónustu LeBronsJames í NBA-deildinni í körfubolta heldur áfram eftir að hann varð formlega laus allra mála frá Miami Heat á þriðjudaginn.

LeBron er að skoða sín mál og er tilbúinn að yfirgefa Miami finni hann rétt lið sem getur borgað honum uppsett verð og smíðað meistaralið í kringum hann.

Samkvæmt heimildum ESPN hafa forráðamenn Phoenix Suns, Houston Rockets, Dallas Mavericks og Cleveland Cavaliers hitt Rich Paul, umboðsmann LeBrons, að máli í Cleveland þar sem skrifstofur hans eru.

Mitch Kupchak, framkvæmdasjóri Los Angeles Lakers, flýgur svo til Cleveland í dag og ræðir við Paul, að því fram kemur í frétt ESPN.

Carmelo Anthony verður líklega ekki áfram hjá New York.vísir/getty
Phoenix Suns er sagt íhuga að mæta til leiks með ofurlið á næsta ári en RobertSarver, eigandi Suns, ræddi við umboðsmann LeBrons á miðvikudaginn.

Hann er sagður vilja lokka besta körfuboltamann heims til Phoenix með því að semja einnig við CarmeloAnthony og ChrisBosh. Báðir eru lausir allra mála frá sínum félögum og eru á félagaskiptamarkaðnum.

Spennandi hlutir eru að gerast í Phoenix en liðið kom gríðarlega á óvart á síðustu leiktíð og var hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina.

Mark Cuban, milljarðamæringurinn skrautlegi sem á Dallas Mavericks, hafnar því reyndar að hafa verið í Cleveland á dögunum til að ræða við Rich Paul. Hann segist hafa verið þar í tökum fyrir sjónvarpsþáttinn Shark Tank sem hann er stór hluti af.

Dwayne Wade og Chris Bosh geta samið við önnur lið.vísir/getty
LeBron James ætlar ekki að hitta nein lið formlega sjálfur eins og hann gerði fyrir fjórum árum heldur mun umboðsmaður hans sjá um allt. LeBron er í fríi með fjölskyldunni og ætlar að sjá úrslitaleik HM í fótbolta í Ríó þann 13. júlí.

Ekki er útilokað að LeBron verði áfram í Miami, en þar á bæ eru menn að reyna að búa til annað meistaralið í kringum hann. Það mun þó reynast Miami-mönnum erfitt því bæði Dwayne Wade og Chris Bosh eru með lausa samninga og vilja fá ríkulega borgað.

Fari Bosh er líklegt að PauGasol komi frá Lakers en forráðamenn Miami hafa átt í viðræðum við hann um að koma fyrir viðráðanlegan samning.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×