Fótbolti

Bar Messi saman við Loch Ness-skrímslið: Versta spurning sem ég hef fengið | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brendan Rodgers, stjóri Celtic, viðurkennis fúslega að spurning sem hann fékk á blaðamannafundi í dag sé sú versta sem hann hafi nokkru sinni fengið.

Spurningin, sem var reyndar illskiljanleg, snerist um samanburð á Lionel Messi og Loch Ness-skrímslinu í Skotlandi.

Tilefnið var leikur Celtic við Barcelona í Meistaradeild Evrópu í kvöld en eins og vitað er leikur Messi með Barcelona.

Blaðamaðurinn virtist vilja fá álit Rodgers á því hvor væri trúanlegri - Messi eða Loch Ness-skrímslið. Svar Rodgers má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×