Innlent

Bannar slátrun og flutninga á nautgripum sem komust í kjötmjöl

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Myndin er úr safni og tengjast gripirnir fréttinni ekki beint.
Myndin er úr safni og tengjast gripirnir fréttinni ekki beint. Vísir/Stefán
Matvælastofnun hefur lagt bann á markaðssetningu afurða, slátrun til manneldis og flutning nautgripa frá bænum Eystri-Grund við Stokkseyri þar sem þeir höfðu aðgang að óvörðum og götuðum sekkjum af kjötmjöli sem ætlað var sem áburður. Kjötmjöl er óheimilt í fóðri fyrir dýr í matvælaframleiðslu.

Í tilkynningu frá MAST segir að umfangsmikil löggjöf banni „notkun á á kjötmjöli sem fóður eða til fóðurgerðar fyrir dýr sem alin eru til manneldis til að hindra að heilahrörnunarsjúkdómar berist í menn og dýr. Þrátt fyrir að kjötmjölið hafi verið ætlað til notkunar sem áburður í flög þá var ljóst að nautgripir höfðu óheft aðgengi að sekkjunum um nokkra mánaða skeið.

Göt voru á sekkjunum eftir tæki sem notað hefur verið til að koma sekkjunum á planið og höfðu fuglar gatað sekkina enn frekar. Þó svo að ekki hafi verið um ætlaða fóðurgjöf að ræða heldur andvaraleysi þá voru ummerki á staðnum um að nautgripir hafi verið við sekkina, þannig að sýnt þykir að mati Matvælastofnunar að nautgripirnir hafi sleikt og étið kjötmjöl úr þeim.“

MAST hefur lagt tillögur fyrir ráðherra að þeim gripum sem komust í kjötmjölið verði fargað.

Nánar má lesa um málið á vef MAST.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×