Glamour

Banna Gucci að halda tískusýningu á Akrópílishæð

Ritstjórn skrifar
Akrópólishæð er eitt helsta aðdráttarafl Aþenu.
Akrópólishæð er eitt helsta aðdráttarafl Aþenu.
Það virðist sem Gucci hafi ætlað sér að halda Resort tískusýninguna sína á Akrópólishæð í Aþenu í Grikklandi í sumar. Beiðni þeirra hefur þó verið hafnað af menningamálaráðuneyti Grikklands. Ástæðan mun vera að það yrði of mikið áreiti á þessar fornu leifar. Akrópólishæð er eitt helsta tákn heimsins um lýðræði og frelsi, samkvæmt yfirlýsingu frá grískum yfirvöldum. 

Í fyrra hélt Gucci sýninguna sína í hinni sögufrægu kirkju, Westminister Abbey, í London. Það er því greinilegt að þau hafi ætlað sér að toppa seinustu sýningu með enn merkilegri staðsetningu. 

Gucci hélt tískisýningu í Westminister Abbey seinasta sumar. Það var í fyrsta skiptið sem að tískusýning hefur verið haldin í þeirri sögulegu kirkju.Myndir/Getty





×