Viðskipti innlent

Bankasýslan segist hafa staðið faglega að verki í Borgunarmálinu

ingvar haraldsson skrifar
Lárus Blöndal formaður stjórnar Bankasýslu ríkisins.
Lárus Blöndal formaður stjórnar Bankasýslu ríkisins. 365/ÞÞ
„Af gefnu tilefni vill Bankasýsla ríkisins undirstrika að í samskiptum sínum við Landsbankann vegna Borgunarmálsins hefur hún staðið faglega að verki,“ segir í yfirlýsingu á vef Bankasýslu ríkisins.

Fimm bankaráðsmenn Landsbankans, þar á meðal Tryggvi Pálsson, formaður bankaráðsins lýstu því yfir í gær að þeir myndu ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu í bankaráðinu á aðalfundi Landsbankans sem fer fram 14. apríl.

Í yfirlýsingu fimmmenninganna var fullyrt að Tryggvi hefði verið boðaður á fund Lárusar Blöndal, stjórnarformanns Bankasýslunnar og Jóns G. Jónssonar, forstjóra Bankasýslunnar fyrir helgi þar sem farið hefði verið fram á að Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans yrði sagt upp og Tryggvi og varaformaður bankaráðs vikju sæti.

„Þarna gengur Bankasýslan skrefi of langt. Það er hlutverk bankaráðs og Fjármálaeftirlitsins að meta hæfi bankastjórans. Við munum ekki taka þátt í skollaleik sem hvorki samrýmist meginreglum félagaréttar né góðum stjórnarháttum,“ sagði í yfirlýsingu bankaráðsmannanna.

Lárus sagði við Vísi á mánudaginn að ekki verið skoðað hvort tilefni væri til að gera breytingar á bankaráðinu eða æðstu stjórnendum Landsbankans.

„Stofnunin stendur við allar athugasemdir sínar og yfirlýsingar fyrirsvarsmanna hennar í fjölmiðlum vegna málsins,“ segir í yfirlýsingu Bankasýslunnar.

Þá bíði Bankasýslan enn efnislegra svara við bréfi sem sent var bankaráði Landsbankans vegna Borgunarmálsins þar sem m.a. kom fram að Bankasýslan teldi allar skýringar Landsbankans fyrir því að selja hlut í Borgun ekki í opnu söluferli ófullnægjandi.

Í kjölfar yfirlýsingar fimmmenninganna mun Bankasýslan nú formlega óska eftir tilnefningu valnefndar um nýja bankaráðsmenn og á næstu dögum auglýsa eftir einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum. „Stefnt er að kosningu bankaráðsmanna á fyrirhuguðum aðalfundi Landsbankans sem haldinn verður þann 14. apríl,“ segir á vef bankasýslunnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×