Viðskipti innlent

Bankasýslan sagði uppsögn Steinþórs ekki til skoðunar

Ingvar Haraldsson skrifar
Steinþór Pálsson hyggst starfa áfram sem bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson hyggst starfa áfram sem bankastjóri Landsbankans. Vísir/Vilhelm
„Við höfum ekkert skoðað það,” sagði Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, á mánudaginn um hvort til greina kæmi að gera breytingar á bankaráði eða yfirstjórn Landsbankans vegna Borgunarmálsins.

Bankasýslan greindi fjárlaganefnd á mánudagsmorgun frá bréfi sem hún hefði sent bankaráði Landsbankans. Þar kom fram að Bankasýslan teldi allar skýringar Landsbankans fyrir því að selja hlut í Borgun ekki í opnu söluferli ófullnægjandi.

Sjá einnig: Milljarðar króna skiptu um hendur og enginn veit hver vissi hvað

Í gærkvöldi tilkynntu svo fimm bankaráðsmenn að þeir myndu ekki gefa kost á sér til endurkjörs á aðalfundi í apríl. Þeirra á meðal var Tryggvi Pálsson, formaður bankaráðsins.

Í yfirlýsingu fimmmenninganna var fullyrt að áður en bréf Bankasýslunnar til bankaráðsins hefði verið afhent fyrir helgi hafi Lárus boðað Tryggva á sinn fund með þau skilaboð að það eina sem dygði væri að segja Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, upp og að formaður og varaformaður bankaráðsins myndu víkja.

Sjá einnig: Bankaráðið grípi til „viðeigandi ráðstafana“ til að endurheimta traust

„Sú afstaða stjórnar Bankasýslunnar fékkst síðar staðfest,“ segir í yfirlýsingu fimmmenninganna. „Þarna gengur Bankasýslan skrefi of langt. Það er hlutverk bankaráðs og Fjármálaeftirlitsins að meta hæfi bankastjórans. Við munum ekki taka þátt í skollaleik sem hvorki samrýmist meginreglum félagaréttar né góðum stjórnarháttum.“

„Við bíðum eftir því að fá þessar tillögur, eða hugmyndir, frá bankaráðinu og þá veltum við vöngum yfir næstu skrefum þegar það er komið,” sagði Lárus á mánudaginn, en bankaráðinu var gefið til mánaðamóta til að bregðast við bréfi Bankasýslunnar.

Í kjölfar yfirlýsingar bankaráðsmannanna í gærkvöldi sendi Steinþór frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann myndi starfa áfram sem bankastjóri Landsbankans.


Tengdar fréttir

Landsbankinn ekki seldur á næstu mánuðum

"Ég er mjög sáttur við að Bankasýslan bregðist við erindi mínu með þessum hætti. Þeir hafa tekið undir það að þetta mál hefur valdið bankanum vissu tjóni,‟ segir Bjarni Benediktsson,

Bankaráðið grípi til „viðeigandi ráðstafana“ til að endurheimta traust

Bankasýsla ríkisins telur rökstuðning Landsbankans fyrir sölunni á Borgun ófullnægjandi, bankinn hafi ofmetið þrýsting frá Samkeppniseftirlitinu að selja hlutinn og að verklagi við söluna hafi verið ábótavant. Bankasýslan vill að bankaráð Landsbankans grípi til viðeigandi ráðstafana til að endurheimta traust á bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×