Innlent

Bankastarfsmenn í Borgartúni farið á tvo hópfundi með sérfræðingi í áföllum í kjölfar ránsins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá aðgerðum lögreglu í Landsbankanum í Borgartúni.
Frá aðgerðum lögreglu í Landsbankanum í Borgartúni. vísir/vilhelm
Starfsfólk útibús Landsbankans í Borgartúni fór á tvo hópfundi með sérfræðingi í áföllum í kjölfar bankaráns sem framið var í útibúinu fyrir viku síðan. Þá býðst starfsfólkinu einnig að fá sérstaka tíma í áfallahjálp að sögn Rúnars Pálmasonar, upplýsingafulltrúa bankans.

„Það var svo hringt í alla viðskiptavini sem voru inni í útibúinu þegar ránið var framið og einhverjir hafa þegið áfallahjálp. Þá gáfum við líka upp símanúmer fyrir þá sem hlupu út úr bankanum þegar ránið var framið svo við höfum gert okkar besta til að ná til allra þeirra sem urðu vitni að þessu en ef við höfum ekki náð í alla þá má hafa samband við bankann hvenær sem er,“ segir Rúnar.

Útibúinu var lokað vegna ránsins og opnaði ekki á gamlársdag eins og til hafði staðið en það opnaði núna á mánudaginn og hefur starfsemin verið með venjubundnum hætti nú í vikunni.

„Við náttúrulega styðjum vel við bakið á okkar fólki og það er auðvitað fyrir mestu að það meiddist enginn,“ segir Rúnar.

Rúnar segir að starfsfólk bankans hafi í einu og öllu farið eftir þeim öryggisferlum sem gilda og að það eigi mikið hrós skilið fyrir viðbrögð sín í erfiðum aðstæðum. Engu að síður sé nú verið að fara yfir öll öryggismál í bankanum eins og alltaf sé gert í kjölfar svona atburðar.

Aðspurður vill Rúnar ekki gefa upp hversu miklu ræningjarnir stálu og segir að það sé gert í samráði við lögregluna að gefa ekki upp upphæð ránsfengsins. Þó hefur Landsbankinn gefið það út að upphæðin hafi verið óveruleg en allur ránsfengurinn fannst sama dag og ránið var framið.


Tengdar fréttir

Bankarán í Borgartúni

Tveir menn frömdu vopnað rán í útibúi Landsbankans í Borgartúni skömmu fyrir klukkan hálftvö í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×