Tónlist

Bankarán, mannrán og morð í nýju myndbandi The Weeknd sem er stranglega bannað börnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Líklega eitt grófasta tónlistarmyndband sögunnar.
Líklega eitt grófasta tónlistarmyndband sögunnar.
Kanadíski tónlistarmaðurinn The Weeknd gaf frá sér nýtt tónlistarmyndband í gær og hefur það vakið gríðarlega mikla athygli.

Myndbandið er yfirfullt af ofbeldi og kemur fram áður en það hefst að það sé stranglega bannað börnum.

Myndbandið er við lagið False Alarm en það fjallar um banka og mannrán sem endar með skelfilegum afleiðingum.

Rússneski leikstjórinn Ilya Naishuller leikstýrir myndbandinu sem er hið glæsilegasta. Lagið False Alarm má finna á plötu The Weeknd, Starboy.

Hér að neðan má sjá myndbandið sem er stranglega bannað börnum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×