Viðskipti innlent

Bankar loka snemma vegna leiks Íslands og Nígeríu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Útibú Landsbankans og Íslandsbanka loka snemma á föstudaginn.
Útibú Landsbankans og Íslandsbanka loka snemma á föstudaginn. Vísir/GVA
Útibú Íslandsbanka og Landsbanka munu loka fyrr en venjulega föstudaginn 22. júní vegna leiks Íslands og Nígeru á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem hefst klukkan 15. Þetta kemur fram í tilkynningum frá bönkunum.

Öll útibú Íslandsbanka munu opna einum klukkutíma fyrr en venja er, eða klukkan 8, næsta föstudag. Þá munu bankinn og þjónustuver hans loka klukkan 15 svo starfsfólk geti horft á leikinn með sínu fólki, að því er segir í tilkynningu.

Útibúum Landsbankans auk þjónustvers bankans verður lokað klukkan 14 á föstudag vegna leiksins.

Viðskiptavinum bankanna er bent á viðeigandi netbanka og öpp meðan lokanir standa yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×