Erlent

Bandarískum hermönnum fjölgar hratt í Sómalíu

Samúel Karl Ólason skrifar
Árásir hryðjuverkamanna hafa verið tiðar í Sómalíu að undanförnu.
Árásir hryðjuverkamanna hafa verið tiðar í Sómalíu að undanförnu. Vísir/AFP
Fjöldi hermanna Bandaríkjanna í Sómalíu hefur rúmlega tvöfaldast á einu ári. Nú eru rúmlega 500 hermenn sagðir vera þar í landi og hafa þeir ekki verið fleiri frá árinu 1993 þegar hin fræga „Black Hawk Down“ orrusta var háð í Mogadishu og 18 hermenn féllu. Bandaríkin hafa einnig sent hershöfðingja til Sómalíu, til að halda utan um aðgerðir þar, í fyrsta sinn frá 1993.

Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna neita því þó að umfang aðgerða í Sómalíu sé að aukast.

Á sama tíma er Afríkubandalagið að draga úr fjölda hermanna í Sómalíu sem hafa verið þar til að berjast gegn hryðjuverkasamtökunum al-Shabab, sem tengjast al-Qaeda, og öðrum hópum sem eru hliðhollir Íslamska ríkinu. Byrðin á herðum heimamanna og hermönnum Sómalíu er því að aukast verulega.

Flak annarrar þyrlunnar sem skotin var niður í Black Hawk Down orrustunni 1993.Vísir/Getty
Sérsveitarmennirnir vinna að því að þjálfa heimamenn gegn al-Shabab og veita þeim ráðgjöf.

Fjölga hermönnum og árásum

Í frétt Newsweek er þeirri spurningu velt upp hvort að Bandaríkin stefni í annað „eilífðar stríð“ þar sem dregið hefur úr aðgerðum þeirra í Írak og Sýrlandi. Loftárásum Bandaríkjanna hefur fjölgað verulega á svæðinu og hafa 28 árásir verið gerðar á þessu ári. Sérfræðingar segja að fjórtán eða fimmtán slíkar árásir hafi verið gerðar í landinu í fyrra.



Meðlimur Seal Team 6, Kyle Milliken, féll í átökum í Sómalíu fyrr á þessu ári þegar sérsveitarmenn og sómalískir hermenn gerðu sameiginlega árás gegn al-Shabab. Dauði hans varpaði ljósi á aðgerðir Bandaríkjanna í Sómalíu þrátt fyrir að aðgerðir þeirra hafi í raun staðið yfir frá byrjun síðasta áratugar.

Hernaðaryfirvöld hafa þó ávalt haldið því fram að reynt sé að halda hermönnum Bandaríkjanna frá átökum og að heimamenn leiði aðgerðirnar. Milliken og aðrir sérsveitarmenn voru þó á ferð með hermönnum Sómalíu og í einum hópi þegar árás var gerð á þá.

Sérfræðingur sem Politico ræddi við segist hafa áhyggjur af þátttöku bandarískra sérsveitarmanna í átökum í landinu þar sem flókin stjórnmál fjölda ættbálka ráða ríkjum. Það sé meðal þeirra vandamála sem Bandaríkin hafa lent í í Afganistan og nauðsynlegt sé að hafa fólk sem þekki vel til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×