Innlent

Bandarískir ferðamenn hólpnir úr villu

Gissur Sigurðsson skrifar
Frá Hesteyri en þangað komu bandarísku ferðamennirnir eftir að hafa lent í villu.
Frá Hesteyri en þangað komu bandarísku ferðamennirnir eftir að hafa lent í villu. visir/stefán
Tveir bandarískir ferðamenn skiluðu sér heilir á húfi niður á Hesteyri við Jökulfirði í Ísafjarðardjúpi seint í gærkvöldi, en þeir höfðu haft samband við lögregluna á Ísafirði í gærdag og sagst vera villtir.

Lögregla taldi þó ekki ástæðu til að senda strax út leitarflokka, þar sem mennirnir voru vel búnir og gott veður var á svæðinu. Leit var því ekki  hafin þegar þeir skiluðu sér til byggða, en nú er frístundabyggð á Hesteyri eftir að föst búseta lagðist þar af á síðustu öld.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×