Erlent

Bandarískir embættismenn mótmæla tilskipun Trump

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Tilskipun Trumps hefur verið harðlega gagnrýnd um allan heim.
Tilskipun Trumps hefur verið harðlega gagnrýnd um allan heim. vísir/epa
Tugir embættismanna í bandarísku utanríkisþjónustunni hyggjast leggja fram formlega gagnrýni á tilskipun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um takmarkanir á ferðum ríkisborgara sjö múslimaríkja til Bandaríkjanna.

Tilskipunina undirritaði Trump síðastliðinn föstudag og sagði að um tímabundar aðgerðir væri að ræða. Hún meinar öllum ríkisborgurum Íraks, Írans, Líbíu, Sómalíu, Súdans, Sýrlands og Jemens inngöngu í Bandaríkin og gildir slíkt einnig um fólk frá þessum ríkjum sem eru handhafar græna kortsins.

Græna kortið er vegabréfsáritun sem veitir handhöfum þess varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi í Bandaríkjunum. Það gegnir að auki hlutverki skilríkis og er ótvíræð sönnun þess að handhafinn sé löglegur innflytjandi þar í landi.

Bannið kemur til með að gilda í þrjá mánuði en markmiðið með aðgerðunum er að hindra flæði múslimskra hryðjuverkamanna til landsins.

Bob Freguson, ríkissaksóknari Washington fylkis, hefur sagt að hann hyggist kæra Trump fyrir tilskipunina og segir hana ekki vera í samræmi við stjórnarskrá landsins.

Fylgja eða fara

Sean Spicer, upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, hefur varið tilskipunina. Á blaðamannafundi gaf hann lítið fyrir fréttir af því að tilskipunin hafi skapað ringulreið á flugvöllum landsins.

„Á einum sólarhring hafa 325 þúsund manns komið til landsins og við erum að tala um 109 manns frá þessum sjö löndum,“ sagði Spicer og sagði jafnframt tilskipunin væri byggð á stefnu Obamastjórnarinnar.

„Og þessir embættismenn hafa eitthvað á móti því? Mér finnst að þeir ættu að fylgja áætluninni eða þeir geta farið.“

Einangra vinaþjóðir

Í uppkasti af yfirlýsingu embættismannanna, sem BBC hefur undir höndum, segir að takmarkanir á innflytjendum muni ekki auka öryggi Bandaríkjana og muni þess þó heldur senda röng skilaboð til múslimalanda og einangara þau lönd sem geta veitt liðsauka í baráttunni gegn hryðjuverkum.

Þar segir einnig að flestar hryðjuverkaárásir í Bandaríkjunum hafa verið framdar af bandarískum ríkisborgurum.

„Afleiðing þessa banns mun ekki vera færri hryðjuverka árásir í Bandaríkjunum, heldur mun velvild alþjóðasamfélagsins gagnvart Bandaríkjamönnum minnka og ógna efnahag okkar,“ segir í uppkastinu.

Í yfirlýsingu sem Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sendi frá sér í dag gagnrýnir hann nýlega tilskipun Trump og segir að verið sé á mismuna einstaklingum á grunni trúar. „Bandarísk gildi eru í húfi,“ segir Obama.

Í frétt Washington Post er haft eftir Kevin Lewis, talsmanni Obama, að forsetinn álíti mótmælin, sem nú eiga sér stað víðs vegar um landið, vera uppörvandi. Þá hafnaði hann jafnframt að tilskipun Trump hafi verið byggð á stefnu Obamastjórnarinnar.


Tengdar fréttir

Íslenskir þingmenn fordæma tilskipun Bandaríkjaforseta

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, mun koma áleiðis skýrum skilaboðum stjórnvalda sem fordæma tilskipun forseta Bandaríkjanna sem bannar ríkisborgurum sjö þjóða að koma til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×