Viðskipti erlent

Bandaríska hagkerfið blómstrar eftir kjör Trumps

Sæunn Gísladóttir skrifar
Donald Trump var kjörinn forseti 8. nóvember.
Donald Trump var kjörinn forseti 8. nóvember. Vísir/AFP
Útlit er fyrir að fjórði ársfjórðungur verði góður fyrir bandaríska hagkerfið en það virðist vera að styrkjast í aðdraganda forsetatíðar Donalds Trump.

Reuters greinir frá því að pantanir á vörum framleiddum í Bandaríkjunum hafi aukist í október, vegna aukinnar eftirspurnar eftir vélum og öðrum tólum. Þetta sé ein vísbending um að fjórði ársfjórðungurinn verði góður vestan hafs.

Væntingavísitalan jókst samkvæmt nýjustu tölum. Neytendur virðast telja að sigur Trumps verði jákvæður fyrir persónulegan fjárhag þeirra og framgang í efnahagslífinu.

Þeim sem sóttu um atvinnuleysisbætur fjölgaði milli vikna, sem er í takt við aukið aðhald á vinnumarkaði. Talið er líklegt að stýrivextir verði hækkaðir núna í nóvember í ljósi þessarar aðstæðna.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×