Viðskipti erlent

Bandaríkjastjórn leyfir boranir norðan Alaska

Kristján Már Unnarsson skrifar
Mótmælendur réru á kajökum og kanúum í átt að borpallinum í höfninni í Seattle um helgina.
Mótmælendur réru á kajökum og kanúum í átt að borpallinum í höfninni í Seattle um helgina. Mynd/AP.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur samþykkt áætlun olíufélagsins Shell um að hefja á ný boranir í sumar á heimskautasvæði djúpt undan ströndum Alaska, þrátt fyrir hörð mótmæli náttúruverndarsamtaka. Andstæðingar olíuleitarinnar brugðust við um helgina með því að róa kajökum og kanóum að borpalli á vegum Shell í höfninni í Seattle.

Borsvæðið er norðan Beringssunds, í Chukchi-hafi á 71. breiddarbaug, en það er álíka norðarlega og nyrstu strandir Noregs. Norðmenn og Rússar hafa leyft olíuleit enn nær heimskautinu, eða allt norður á 73. breiddargráðu. Þess má geta að Drekasvæðið íslenska liggur á milli 67. og 69. breiddargráðu.

„Við getum ekki treyst Shell fyrir heimskautasvæðum Ameríku,“ sagði formaður helstu náttúruverndarsamtaka Alaska, um leið og rifjað var upp að Shell neyddist fyrir þremur árum til að gera hlé á olíuleit á svæðinu þegar mikilvægur öryggisbúnaður stóðst ekki prófanir. Til að kóróna klúðrið strandaði svo borpallurinn þegar verið var að draga hann burt af svæðinu árið 2012.

Talsmaður Shell segir samþykki Bandaríkjastjórnar mikilvægan áfanga sem sýni traust eftirlitsstofnana á áætlun fyrirtækisins.

Umhverfissamtök hafa í stjórnartíð Baracks Obama ítrekað fagnað staðfestu forsetans í baráttunni fyrir því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Nú gagnrýna þau Obama fyrir að opna ný svæði til olíuleitar, ekki aðeins á norðurslóðum heldur einnig í Atlantshafi og undan suðausturströndum Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

Noregur leyfir olíuleit á 73 gráðum norður

Olíu- og orkumálaráðuneyti Noregs hefur tilkynnt að næsta útboð sérleyfa til olíuleitar og olíuvinnslu, hið 23. í röðinni, hefjist á fyrsta fjórðungi þessa árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×