Golf

Bandaríkjamenn raða sér í efstu sætin á TPC Deere Run - Margir sterkir í baráttunni í Skotlandi

Rickie Fowler hefur leikið vel í Skotlandi.
Rickie Fowler hefur leikið vel í Skotlandi. Getty
Bandaríkjamenn eru áberandi ofarlega á skortöflunni eftir tvo hringi á John Deere Classic en Justin Thomas leiðir mótið á 12 höggum undir pari.

Í öðru sæti koma þeir Johnson Wagner og Tom Gillis á 11 höggum undir en margir kylfingar koma síðan á tíu og níu höggum undir pari.

Jordan Spieth reif sig heldur betur í gang á öðrum hring eftir lélega byrjun í mótinu en hann lék TPC Deere Run völlinn á 64 höggum eða sjö undir pari og situr jafn í 16. sæti.

Margir sterkir kylfingar eru einnig meðal þátttakenda á Opna skoska meistaramótinu á Evrópumótaröðinni þar sem þeir undirbúa sig fyrir Opna breska meistaramótið á St. Andrews um næstu helgi.

Þar leiðir hinn breski Daniel Brooks en kylfingar á borð við Graeme McDowell, Justin Rose, Rickie Fowler og Matt Kuchar eru einnig ofarlega og munu eflaust gera atlögu að toppsætinu um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×