Erlent

Bandaríkjamenn á flótta undan Trump velkomnir til Kanada

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Velkomin! Íbúar á Cape Breton taka Bandaríkjamönnum fagnandi.
Velkomin! Íbúar á Cape Breton taka Bandaríkjamönnum fagnandi. Mynd af heimasíðunni „Cape Breton If Donald Trump Wins“
Í hverjum forsetakosningum, og raunar við fleiri tilefni, henda fjölmargir Bandaríkjamenn fram þeirri fullyrðingu að verði niðurstaðan ekki eins og þeir kjósi að hún verði þá flytji þeir til nágrannanna í Kanada. Sú staðreynd að frambjóðandi repúblikana, Donald Trump, á raunhæfan möguleika og gott betur að verða næsti forseti Bandaríkjanna virðist gera fjölmennan hóp Bandaríkjamanna óttasleginn um komandi framtíð.

Íbúar á kanadísku eyjunni Cape Breton í Nova Scotia hafa svarað kalli Bandaríkjamanna og segjast taka við „bandarískum flóttamönnum“ verði niðurstaðan sú að Trump nái kjöri sem forseti. Húmorinn ræður för í þessu átaki eyjaskeggja en eyjan, sem er við austurströnd Kanada, er um 10 þúsund ferkílómetrar eða um einn tíundi af stærð Íslands. Þar búa um 135 þúsund manns.

Sjá einnig:Allt stefnir í slag Hillary og Trump

Útvarpsmaðurinn Rob Calabrese kom heimasíðunni „Cape Breton If Donald Trump Wins“ í loftið. Heiti síðunnar mætti snúa yfir á íslensku sem „Förum til Cape Breton ef Donald Trump sigrar.“ Þar er því lýst hvaða hag fólk hefði af að flytjast búferlum til eyjarinnar. Síðan hefur fengið 300 þúsund heimsóknir undanfarnar tvær vikur.

Flest bendir til þess að Trump verði frambjóðandi repúblikana.Vísir/EPA
Hundruð Kana fúlasta alvara

Á Cape Breton eru fóstureyðingar leyfðar, múslimar fá að vera á meðal fólks og einu veggirnir eru þeir sem halda þökunum uppi á húsunum, sem eru á einstaklega viðráðanlegu verði. Þá er heilbrigðisþjónusta ókeypis, nágrannar þekkjast og gæta hvers annars og enginn er með byssu.

Ferðamálastjóri á eyjunni segir að opinber heimasíða Cape Breton hafi fengið 12 þúsund heimsóknir í síðustu viku. Heimsóknir á síðuna voru 1300 sömu viku í fyrra. Hann segir segir hag eyjarinnar af fleiri íbúum vera bætt hagkerfi. Veðrinu lýsir hann sem sambærilegu við annars staðar á austurströnd Bandaríkjanna.

Herferð ferðamálafólksins hefur vakið athygli í Bandaríkjunum, svo mikla að CNN hefur sent tökulið til eyjarinnar til að komast að því hvað sé um að vera. Útvarprsmaðurinn Calabrese segist hafa fengið hundruð tölvupósta frá Bandaríkjamönnum sem eru að skoða flutning til Cape Breton af fullri alvöru.


Tengdar fréttir

Trump og Clinton með ótvíræða forystu

Ofurþriðjudagurinn svonefndi skilaði Donald Trump nokkuð öruggu forskoti hjá Repúblikanaflokknum, helstu ráðamönnum flokksins til skelfingar. Hillary Rodham Clinton náði einnig að skjóta Bernie Sanders langt aftur fyrir sig.

Cruz vann í Alaska

Biður hina frambjóðendur að hætta framboði og styðja sig gegn Trump.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×