Erlent

Bandaríkjaher biðst afsökunar í Afganistan

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Afganskir hermenn drógu á sunnudaginn afganska fánann að húni á ný í borginni Kunduz, tæpri viku eftir að talibanar náðu borginni á sitt vald.
Afganskir hermenn drógu á sunnudaginn afganska fánann að húni á ný í borginni Kunduz, tæpri viku eftir að talibanar náðu borginni á sitt vald. vísir/epa
Bandaríski herinn segir afganska hermenn hafi óskað loftárásar á sjúkrahúsið í Kunduz um helgina. Áður var fullyrt að bandarískir hermenn hefðu óskað eftir árásinni.

Loftárásin kostaði 23 manns lífið. Tíu þeirra voru sjúklingar á sjúkrahúsinu, sem rekið er af alþjóðlegu læknasamtökunum Læknar án landamæra, en 13 hinna látnu voru starfsmenn á sjúkrahúsinu. Tugir manna særðust og stór hluti sjúkrahússins er gjör­ónýtur.

Læknasamtökin segja afgönsk og bandarísk yfirvöld í reynd hafa viðurkennt ábyrgð á stríðsglæp. Þau yfirgáfu Kunduz eftir árásina.

„Læknum án landamæra býður við nýlegum yfirlýsingum frá sumum afgönskum embættismönnum þar sem þeir réttlæta árásina á sjúkrahús samtakanna í Kunduz,“ segir í yfirlýsingu frá samtökunum. „Þetta jafnast á við viðurkenningu á stríðsglæp.“

Samtökin segja ekkert geta réttlætt árásina og ítreka kröfur sínar um alþjóðlega rannsókn á henni.

„Við höfum nú komist að því að þann 3. október hafi afganskir hermenn látið vita af því að skotið væri á þá frá óvinastöðum og óskað eftir aðstoð frá bandarískum herþotum,” sagði John Campbell, yfirmaður bandaríska herliðsins í Afganistan. „Þá var efnt til loftárásar til að útrýma hættunni, sem stafaði af talibönum, og nokkrir saklausir almennir borgarar urðu fyrir henni af slysni.“

Harðir bardagar hafa geisað í Kunduz undanfarna daga. Talibanar náðu borginni í síðustu viku en afganski stjórnarherinn hefur reynt að ná henni aftur, með aðstoð frá Bandríkjaher.

Stjórnarherinn sagðist hafa náð borginn eftir nokkurra daga bardaga, en átökin héldu samt áfram og engan veginn ljóst hvort þeim er lokið.

Kunduz er höfuðborg samnefnds héraðs í norðvesturhluta landsins. Íbúar eru flestir Pastúnar, sem búa þó einkum í suðvesturhluta landsins. Talibanar eiga mest ítök meðal Pastúna og var Kunduz höfuðvígi þeirra í norðvesturhluta landsins er þeir voru við völd. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×