Sport

Bandaríkin rufu einokun Kanada í íshokkí kvenna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bandarísku stúlkurnar fagna með látum eftir að gullið var í höfn.
Bandarísku stúlkurnar fagna með látum eftir að gullið var í höfn. vísir/ap
Það vantaði ekki dramatíkina í úrslitaleik Bandaríkjanna og Kanada í íshokkíkeppni kvenna á Vetrarólympíuleikunum. Þar nældi bandaríska liðið í sitt fyrsta gull í 20 ár.

Leikurinn var jafn og spennandi allan leikinn. Eftir framlenginguna var staðan 2-2 og því varð að grípa til vítakeppni þar sem taugar bandarísku stúlknanna voru sterkari og það í bráðabana í vítakeppninni. Eins mikil dramatík og hægt var að bjóða upp á.

Fyrsti úrslitaleikurinn í íshokkí kvenna var á leikunum árið 1998. Þá hafði bandaríska liðið betur gegn því kanadíska.

Kanada svaraði með því að taka gullið á næstu fjórum leikum og alltaf með því að vinna Bandaríkin í úrslitaleiknum.  Í morgun snérist taflið við á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×