Erlent

Bandaríkin og Rússland samþykkja vopnahlé í Sýrlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Átök í Sýrlandi hafa staðið yfir i um fimm ár og minnst 250 þúsund hafa látið lífið.
Átök í Sýrlandi hafa staðið yfir i um fimm ár og minnst 250 þúsund hafa látið lífið. Vísir/EPA
Rússland og Bandaríkin hafa komist að samkomulagi um vopnahlé á milli stjórnvalda og uppreisnarhópa í Sýrlandi. Bandaríkin styðja við bakið á uppreisnarhópum og Rússar styðja Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og stjórnarherinn. Vopnahléið á að taka gildi þann 27. febrúar næstkomandi.

Stjórnarherinn og uppreisnarhópar eiga þó eftir að samþykkja vopnahléið.

Það nær þó ekki til Íslamska ríkisins, Nusra front og annarra samtaka sem Sameinuðu þjóðirnar skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Bæði Bandaríkin og Rússland gera loftárásir gegn þeim samtökum, þó eru flestar loftárásir Rússa gegn áðurnefndum uppreisnarhópum.

Fyrr í mánuðinum lögðu Rússar til að vopnahlé yrði sett á þann 1. mars, en Bandaríkin neituðu því og fór fram á það yrði gert fyrr. Viðræður mistókust þó og tókst ekki að samþykkja vopnahlé fyrr en nú. Fréttamenn Al Jazeera segjast hafa séð drög að samkomulaginu og að það verði tilkynnt seinna í dag.

Minnst 250 þúsund manns hafa látið lífið í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi og milljónir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.


Tengdar fréttir

Rússar hafna ásökunum um stríðsglæpi

Hátt í fimmtíu manns féllu í eldflaugaárásum á fjögur sjúkrahús og skóla á svæðum sem uppreisnarmenn ráða yfir í norðurhluta Sýrlands í gær.

Friðarsamkomulag upp á von og óvon

Stefnt er að vopnahléi í Sýrlandi eftir eina viku og kosningum eftir 18 mánuði. Uppreisnarmenn hafa litla trú á samkomulaginu og Assad forseti segist staðráðinn í að ná landinu öllu aftur á sitt vald. Enn á eftir að fá samþykki frá b




Fleiri fréttir

Sjá meira


×