Innlent

Banaslys á Þingvallavegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið. Vísir
Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Þingvallavegi við Leirvogsá, skammt frá Laxnesi, síðdegis í gær, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 17.08.

Maðurinn féll af bifhjóli sem hann ók áleiðis til Reykjavíkur.

Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala í Fossvogi þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×