Innlent

Banaslys á Hafnarvegi við Höfn í Hornafirði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Banaslys varð á Hafnarvegi rétt norðan við Höfn í Hornafirði í dag en þetta staðfestir lögreglumaður á svæðinu í samtal við við fréttastofu.

Slysið átti sér klukkan 17:30 í dag en sendiferðabifreið og vörubíll lentu saman á veginum.

Ökumaður sendiferðabílsins var fluttur á heilsugæslustofuna á Höfn eftir áreksturinn en var úrskurðaður látinn stuttu síðar.

Málið er nú til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×