Lífið

Bambaruglingur stal senunni í Messunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gumma fannst þetta fyndið.
Gumma fannst þetta fyndið.
Heil umferð var í enska boltanum um helgina og var umferðin gerð upp í Messunni í gærkvöldi á Stöð 2 Sport.

Guðmundur Benediktsson er þáttastjórnandi og sérfræðingarnir voru þeir Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson. Hjörvar sagði skemmtilega sögu frá því þegar ákveðin knattspyrnumaður hafi verið líkt við Bamba. „Það var talað um að hann væri eins og Bambi á svelli.“

Skoðum aðeins nánar hvað Hjörvar sagði; „Æji.... þarna Bambi, hesturinn eða hvað sem hann er.“

Guðmundur var fljótur að grípa inn í og svaraði. „Nei, hann er ekki hestur,“ og skellihló.

Þetta frábæra atvik má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×