Lífið

Balti og stjörnurnar á rauða dreglinum | Everest frumsýnd í Feneyjum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Josh Brolin, Baltasar og Jake Gyllenhaal í dag.
Josh Brolin, Baltasar og Jake Gyllenhaal í dag. myndir/getty
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum í dag en hann ásamt leikarahópnum eru mætt á rauða dregilinn í Feneyjum.

Myndin segir frá leiðangri hóps göngumanna upp á topp Everest-fjallsins árið 1996 þar sem átta létu lífið. Með helstu hlutverk fara Jake Gyllenhaal, Jason Clarke, Josh Brolin og John Hawkes.

Myndin hefur nú þegar fengið góða dóma úr flestum áttum en hér að neðan má sjá myndir sem voru teknar rétt í þessu á Ítalíu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×