Lífið

Baltasar eftir frumsýningu Everest: „Staðið upp og klappað, hrópað „bravó“ og allur pakkinn“

Atli Ísleifsson skrifar
Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur í Feneyjum fyrr í kvöld.
Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur í Feneyjum fyrr í kvöld. Vísir/AFP
„Þetta er mjög  „overwhelming“. Ég var bara að koma af frumsýningunni. Myndin fékk mjög góðar viðtökur – það var staðið upp og klappað, hrópað „bravó“ og allur pakkinn,“ segir Baltasar Kormákur, leikstjóri stórmyndarinnar Everest, í samtali við Vísi.

Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrr í kvöld, en í aðalhlutverkum myndarinnar eru þau Jake Gyllenhaal, Josh Brolin, Keira Knightly og Robin Wright.

Baltasar segir fólk sem sæki hátíðina í Feneyjunum vera mjög hart og að það gerist ekki alltaf að staðið sé upp á frumsýningum líkt og gert var á Everest fyrr í kvöld. „Ég hef fengið mjög jákvæð viðbrögð frá fólkinu svona strax eftir frumsýningu.“

Baltasar segir að dagurinn hafi verið mjög annasamur með blaðamannafundum, frumsýningma og nú taki við matarveisla. „En þetta eru búnir að vera mjög skemmtilegir dagar og dagskráin er einnig þétt næstu dagana.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×