Enski boltinn

Balotelli og Markovic verstu kaup Liverpool

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mario Balotelli átti slaka leiktíð.
Mario Balotelli átti slaka leiktíð. vísir/getty
Liverpool tókst ekki að komast í Meistaradeildina annað árið í röð í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, en liðið hafnaði í sjötta sæti.

Brendan Rodgers fékk að eyða 100 milljónum punda í leikmenn sem stóðu sig misvel á sinni fyrstu leiktíð hjá Liverpool.

Liverpool-goðsögnin Phil Thompson gefur nýju leikmönnunum einkunn á Sky Sports fyrir frammistöðu sína á tímabilinu, en þar eru Mario Balotelli og Lazar Markovic neðstir á blaði.

Emre Can spilaði vel.vísir/getty
Emre Can - 8

„Ef ekki hefði verið fyrir síðustu fimm eða sex leikina hefði ég gefið honum níu. Hann er klárlega bestur af þeim sem keyptir voru síðasta sumar.“

Adam Lallana - 7

„Ég er mikill aðdáandi Lallana þannig hann fær sjö. Vandamálið var, að alltaf þegar hann náði nokkrum leikjum í röð í byrjunarliðinu meiddist hann.“

Alberto Moreno - 6

„Hann var góður til að byrja með og verður betri á næstu leiktíð eftir að safna í reynslubankann. Hann er leikmaður sem getur spilað nokkrar stöður á vellinum.“

Phil Thompson er sparkspekingur hjá Sky.vísir/getty
Dejan Lovren - 6

„Lovren virtist aldrei ná þeim hæðum sem búist var við, sérstaklega þegar Liverpool skipti úr fjögurra manna vörn í þriggja manna. Hann virtist bara ekki skilja hlutverkið.“

Rickie Lambert - 6

„Rickie fékk ekki nóg af tækifærum til að sýna sig þannig það er ekki hægt að dæma hann góðan eða slakan.“

Mario Balotelli - 5

„Þetta er aum fimma hjá Balotelli. Það er ekki margt hægt að segja um tímabilið hans. Það er frekar augljóst. Hann spilaði langt undir pari.“

Lazar Markovic.vísir/getty
Lazar Markovic - 5

„Hann var bara ekki nógu góður að mínu mati. Hann spilaði ágætlega sem vængbakvörður, en gerði klárlega ekki nógu mikið til að réttlæta allt umtalið í kringum hann þegar hann var keyptur.“

Niðurstaða: „Flestir þessara leikmanna verða hjá Liverpool í nokkur ár því þeir voru keyptir út frá Moneyball-aðferðinni. Það er samt erfitt að fá hana til að virka í þessari deild,“ segir Thompson.

„Núna vantar Liverpool sárlega leikmenn sem nálgast þrítugt og hafa reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni,“ segir Phil Thompson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×