Fótbolti

Balotelli og félagar úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Balotelli í baráttunni í kvöld.
Balotelli í baráttunni í kvöld. vísir/afp
Lokomotiv Moskva er komið áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir 4-2 sigur samanlagt á Nice, en síðari leikur liðanna í kvöld endaði með 1-0 sigri Moskvumanna.

Lokomotiv vann góðan 3-2 sigur í Frakklandi og ljóst að Mario Balotelli og félagar í Nice ættu afar erfitt verkefni fyrir höndum þegar þeir mættu til Rússlands í dag.

Igor Denisov skoraði svo eina mark leiksins fyrir Lokomotiv á 30. mínútu, en 1-0 urðu lokatölurnar og samanlagt 4-2 sigur. Lokomotiv sem er því komið áfram í 16-liða úrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×