Enski boltinn

Balotelli mun deyja hjá Liverpool

Balotelli hefur ekkert getað í rauðu treyjunni.
Balotelli hefur ekkert getað í rauðu treyjunni. vísir/getty
Umboðsmaður Balotelli, Mino Raiola, hefur áhyggjur af skjólstæðingi sínum, Mario Balotelli.

Það hefur ekkert gengið hjá Balotelli í treyju Liverpool. Hann er búinn að skora tvö mörk í 21 leik með félaginu. Hvorugt markanna kom í deildinni.

Framherjinn hefur verið orðaður við önnur félög í janúarglugganum en Raiola á ekki von á því að Balotelli fari neitt. Ástæðan sé sú að ekkert félag sé til í að greiða nógu hátt verð fyrir hann.

„Ég sagði við hann á mánudag að hann væri með samning og færi ekki neitt. Ekki nema það komi risatilboð. Það kemur ekki og hann mun því deyja hjá Liverpool," sagði Raiola við ítalska fjölmiðla.

Umbinn segir að leikmaðruinn sjálfur sé mjög svekktur en hann hafði verið orðaður við bæði Inter og Lazio.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×