Fótbolti

Balotelli missti af upphafsmínútunum því hann reimaði of fast

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Balotelli er engum líkur.
Balotelli er engum líkur. vísir/getty
Ævintýri Mario Balotelli á fótboltavellinum eru ekki eins og hjá öðrum knattspyrnumönnum.

Um síðustu helgi missti hann af fyrstu mínútum í leik Nice, sem hann spilar með, og Nantes af því hann hafði reimað skóna of fast.

Balotelli hefur ekki verið á skotskónum síðustu vikur og vill ólmur bæta úr því. Hann gekk þó aðeins of langt er hann reimaði skóna svo fast að hann meiddi sig.

Er leikurinn hófst hljóp hann að hliðarlínunni og fékk aðstoð við að losa reimarnar og láta reima skóna upp á nýtt. Hann missti af fyrstu tveim mínútum leiksins er þessi aðgerð fór fram.

Það varð heimsfrægt á sínum tíma er Balotelli lenti í stórkostlegum vandræðum með að koma sér í vesti og nú hefur komið í ljós að hann er ekki heldur sá besti í að reima.

Balotelli er búinn að skora 10 mörk í 17 leikjum í vetur og hefur einnig tekist að næla sér í þrjú rauð spjöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×