Enski boltinn

Balotelli hlekkjar sig við Anfield og hlakkar til næsta tímabils

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mario Balotelli tekur mynd.
Mario Balotelli tekur mynd. vísir/getty
Mario Balotelli, framherji Liverpool, birti afar athyglisverða mynd á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi, en lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram í gær.

Balotelli var ekki í leikmannahópi Liverpool sem fékk skell, 6-1, gegn Stoke í gær, en Balotelli skoraði einungis eitt mark í sextán leikjum í deildinni þetta tímabilið.

Balotelli skrifaði með myndinni: „Thanks to Liverpool fans for this year .... I'm loading for next season. #beast," en myndina sem má sjá hér neðst í greininni.

Hægt er að túlka myndina á nokkra vegu, en líklegast er þó að Balotelli sé ekkert á leið burt frá Anfield og hlakki til næsta tímabils.

Thanks to Liverpool fans for this year .... I m loading for next season. #beast

A photo posted by Mario Balotelli (@mb459) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×