Enski boltinn

Balotelli beittur kynþáttaníði á Twitter

Lögreglan í Merseyside í Englandi hefur hafið rannsókn á kynþáttaníði gagnvart Mario Balotelli, leikmanni Liverpool.

Balotelli tjáði sig um óvænt 5-3 tap Manchester United fyrir Leicester í ensku úrvalsdeildinni í dag á TWitter-síðu sinni eins og sjá má hér fyrir neðan.

Honum bárust fjölda svara og hefur lögreglan nú mörg þeirra til rannsóknar. Þó nokkrum Twitter-áskriftum hefur nú þegar verið lokað vegna málsins.

Lögreglan ætlar sér að hafa hendur í hári þeirra sem sendu Balotelli skilaboð sem teljast kynþáttaníð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×