Enski boltinn

Balotelli á leiðinni í læknisskoðun hjá Liverpool

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mario Balotelli er á leiðinni til Liverpool.
Mario Balotelli er á leiðinni til Liverpool. Vísir/Getty
Samkvæmt heimildum Liverpool Echo mun Mario Balotelli fljúga til Liverpool eftir hádegi í dag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir saming hjá Liverpool.

Mino Raiola, umboðsmaður Balotelli, hefur setið við samningaborðið undanfarin sólarhring og hefur komist að samkomulagi við forráðamenn félagsins.

Birti hann fyrstu myndina af Balotelli treyju hjá Liverpool sem gaf til kynna að hann yrði númer 45 hjá Rauða hernum.

Liverpool greiðir AC Milan 16 milljónir punda fyrir Balotelli en hann mun ekki fá leikheimild fyrir stórleikinn gegn Manchester City á mánudaginn.

Til þess þarf Liverpool að skrá leikmanninn fyrir hádegi í dag en það verður að teljast afar ólíklegt að þeir geri það án læknisskoðunar.


Tengdar fréttir

AC Milan staðfestir viðræður um Balotelli

AC Milan staðfesti rétt í þessu á heimasíðu sinni að félagið er í viðræðum við félag sem talið er að sé Liverpool um kaupverðið á Mario Balotelli, framherja ítalska stórveldisins. Balotelli gæti því snúið aftur í enska boltann átján mánuðum eftir að hann fór frá Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×