Glamour

Balenciaga fær innblástur frá Bernie Sanders

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Stjórnmálin vestanhafs hafa verið fyrirferðamikil í fréttum undanfarið og því ekki skrýtið að angar þess nái alla leið á tískupallinn í París þar sem núna fer frá herratískuvika.

Tískuhúsið Balenciaga, með Demna Gvasalia fremstan í flokki, fékk greinilega innblástur frá fyrrum forsetaframbjóðandanum og öldungardeildarþingmanninum Bernie Sanders. 

Jakkar og stuttermabolir með Balenciaga merki sem svipaði mjög til þess merkis sem Sanders notaði í kosningarherferð sinni ásamt því að nota sömu liti. Einnig var línan svona hverdagsleg þar sem jafnvel skóbúnaðurinn, þó að vera merktir hátískumerki, eiga örugglega tvífara sinn í geymslu Sanders. 

Leyfum myndunum að tala sínu máli en er nokkuð greinilegt hverjum yfirhönnuður Balenciaga hélt með í forsetakosningunum. 

Skóbúnaðurinn á tískupallinn vakti athygli ..
Bernie Sanders með stuðningsmönnum sínum á framboðsfundi í fyrra.





×