Fótbolti

Bale og Asensio sáu um Sociedad

Bale fagnar marki sínu.
Bale fagnar marki sínu. vísir/getty
Real Madrid byrjar spænsku úrvalsdeildina á 2-0 sigri á Real Sociedad, en Gareth Bale og Marco Asensio skoruðu mörkin.

Það voru ekki liðnar nema tvær mínútur af leiknum þegar fyrsta markið kom, en það gerði Gareth Bale eftir stoðsendingu frá Daniel Caravajal.

Lítið gerðist restina af fyrri hálfleik þangað til á 40. mínútu þegar hinn ungi og efnilegi Marco Asensio skoraði. Staðan 2-0 í hálfleik.

Ekki var neitt mark skorað í síðari hálfleik og byrja Evrópumeistararnir á sigri þetta árið í spænska boltanum, en þeir voru án Cristiano Ronaldo sem er meiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×