Fótbolti

Bale leigði eyju til að biðja sinnar heittelskuðu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Emma og Gareth hafa verið saman frá því þau voru unglingar.
Emma og Gareth hafa verið saman frá því þau voru unglingar. vísir/getty
Gareth Bale, leikmaður Real Madrid og velska landsliðsins, bað kærustu sinnar, Emmu Rhys-Jones, á dögunum.

Það er kannski ekki í frásögur færandi nema hvað Bale leigði eitt stykki spænska eyju þar sem hann bað sína heittelskuðu um að giftast sér. Og hún sagði já.

Eyjan sem um ræðir nefnist Tagomago og er 900 metra frá norðaustur strönd Ibiza.

Það er langt frá því að vera ókeypis að leigja eyjuna en dagurinn á henni kostar rúmlega 15 milljónir íslenskra króna.

Vinir og fjölskylda voru með í för en Bale notaði einnig tækifærið til að fagna 27 ára afmæli sínu.

Bale og unnusta hans hafa verið saman frá því voru unglingar og eiga tvær dætur saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×