Fótbolti

Bale er ekki til sölu

Gareth Bale.
Gareth Bale. vísir/getty
Það er búið að vera mikið í umræðunni síðustu vikur að Gareth Bale sé á leið aftur til Englands.

Hann hefur ekki fundið sig nógu vel í búningi Real Madrid í vetur og stuðningsmenn Real hafa verið duglegir að baula á hann.

Man. Utd og Chelsea hafa verið nefndir sem líklegir áfangastaðir fyrir Bale en forseti Real, Florentino Perez, ætlar ekki að selja leikmanninn.

„Við myndum einfaldlega aldrei hlusta á nein tilboð í hann. Sama hversu gott tilboðið væri," sagði Perez.

„Hann er einstakur leikmaður sem hefur gefið liðinu mikið. Hann er einn af framtíðarmönnum liðsins. Ég get ekki hugsað mér framtíð Real án Bale og Ronaldo."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×