Fótbolti

Bale aðeins tólf mínútur að skora í endurkomunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bale fagnar marki sínu.
Bale fagnar marki sínu. vísir/getty
Gareth Bale sneri aftur í liði Real Madrid eftir langa fjarveru og skoraði þegar liðið lagði Espanyol að velli, 2-0, á Santiago Bernabeu í dag.

Með sigrinum náði Real Madrid fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar. Madrídingar eiga auk þess leik til góða á Barcelona sem er í 2. sætinu.

Álvaro Morata kom Real Madrid í 1-0 á 33. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Bale kom inn á sem varamaður fyrir Morata á 71. mínútu og tólf mínútum síðar skoraði hann eftir sendingu frá Isco og gulltryggði sigur Real Madrid.

Þetta var fjórði sigur Real Madrid í röð en liðið stefnir hraðbyri að fyrsta meistaratitlinum frá 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×