Bale: Tottenham getur orðið enskur meistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. desember 2010 12:45 Gareth Bale og Luka Modric. Mynd/Nordic Photos/Getty
Gareth Bale hjá Tottenham er viss um það að liðið geti orðið enskur meistari á þessu tímabili. Tottenham hefur staðið sig frábærlega á leiktíðinni til þessa, bæði í deild og Evrópukeppni og það er ekki síst að þakka eimreiðinni á vinstri vængnum. Gareth Bale skoraði sitt tíunda mark á tímabilinu í 2-0 sigri Tottenham á Newcastle í fyrrakvöld og var það mark valið fallegasta mark vikunnar í ensku úrvalsdeildinni. Eftir leikina í vikunni er Tottenham í fimmta sæti deildarinnar einu stigi á eftir Chelsea (4. sæti) og fimm stigum á eftir Manchester liðunum sem eru í efstu tveimur sætunum. „Það er engin ástæða til að halda annað en að við getum barist um titilinn. Við erum fullir sjálfstraust eins og sást þegar við höfum unnið tvo síðustu leiki þrátt fyrir að lenda manni undir. Við sækjum á mótherjana við hvert tækifæri og komum til með að vera með í baráttunni fram á vor," sagði Gareth Bale. „Það eru allir að berjast fyrir hvern annan inn á vellinum og okkur kemur öllum mjög vel saman. Það er að skila sér í góðum úrslitum," sagði Bale. „Það er notalegt að vera búinn að skora tíu mörk á fyrri hluta tímabilsins en ég var ekkert búinn að setja mér neitt markmið að skora ákveðin fjölda af mörkum. Ég ætla bara að halda áfram og vonandi get ég skorað einhver fleiri áður en tímabilinu lýkur," sagði Bale. „Árið 2010 er búið að vera frábært hjá mér en ég ætla að einbeita mér að því að skila minni vinnu og reyna að hjálpa mínu liði. Það er það besta sem getur gerst fyrir mig að ég get eitthvað hjálpað til hjá Tottenham," sagði Bale hógvær að lokum.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira