Fótbolti

Bale: Gott samband á milli mín og Ronaldo

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bale og Ronaldo fagna marki í vetur.
Bale og Ronaldo fagna marki í vetur. vísir/getty
Það er reglulega slúðrað um það að ekki sé allt of gott á milli þeirra Gareth Bale og Cristiano Ronaldo.

Ástæðan fyrir þessum meinta kulda á milli þeirra á að vera sú staðreynd að Bale var keyptur á meiri pening til Real en Ronaldo á sínum tíma.

Ronaldo hefur svo sagt sjálfur að hann þurfi ekki að vera vinur liðsfélaga sinna. Það sé nóg að menn vinni vel saman.

Þessi umræða hefur ekkert farið fram hjá hinum velska Bale og hann hristir hausinn yfir henni.

„Ronaldo talar ensku og það hjálpaði mér mikið þegar ég kom fyrst til Real. Svo tengjumst við í gegnum ensku deildina. Við náum mjög vel saman og allt tal um annað er kjaftæði,“ sagði Bale.

„Við höfum aldrei lent í neinum deilum. Ronaldo er ástríðufullur leikmaður eins og allir sjá. Fólk les stundum of mikið í það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×