Innlent

Baldur bilaði í Eyjum

Vísir/Óskar
Breiðafjarðarferjan Baldur, sem leysir Herjólf af á meðan hann er í slipp í Svíþjóð, bilaði í Vestmannaeyjum í gær og féllu síðdegisferðirnar því niður.

Knattspyrnumenn úr Breiðabliki og ísraelskir handknattleiksmenn urðu þá meðal annarra strandaglópar þar sem ekki var heldur flugveður til Eyja.

Farþegabáturinn Víkingur var þá ræstur út og fór nokkrar ferðir í Landeyjahöfn, en hann tekur hvorki bíla né gáma. Viðgerð á Baldri hófst þegar og mun henni vera lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×