Innlent

Baldur ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, hefur verið ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi og var honum birt ákæran í dag. Verjandi hans telur ákæruna ekki standast og gagnrýnir hvað rannsókn málsins hefur tafist.

Björn L. Bergsson, settur ríkissaksóknari í málum sem tengjast bankahruninu, tók ákvörðun í gær. Baldur Guðlaugsson fór sjálfur og sótti ákæruna laust eftir hádegi í dag, hann fór ekki til Björns, heldur fór hann til embættis sérstaks saksóknara þar sem hann fékk ákæruna afhenta.

Baldur er ákærður fyrir innherjasvik samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti vegna sölu á hlutabréfum sínum í Landsbankanum fyrir 192 milljónir króna hinn 18. september 2008, rúmlega tveimur vikum fyrir bankahrunið. Þá er hann ákærður fyrir brot í opinberu starfi samkvæmt 14. kafla almennra hegningarlaga, fyrir að hafa hagnýtt sér vitneskju sem hann fékk í opinberu starfi, sem ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyti og nefndarmaður í starfshópi um fjármálástöðugleika, til að hagnast ólöglega.

Rannsókn embættis sérstaks saksóknara á meintum innherjasvikum Baldurs Guðlaugssonar stóð yfir í rúmlega ár, en FME kærði málið með bréfi til embættisins hinn 9. júlí á síðasta ári.

Fundur með Darling skipti engu máli - Verjandi Baldurs gagnrýnir tafir
Karl Axelsson, hæstaréttarlögmaður á Lex, er verjandi Baldurs. Hann segir að ákæran standist ekki efnislega. Þá gagnrýnir hann málsmeðferðina, en hann telur rannsókn hafa dregist fram úr hófi.Mynd/Fréttir Stöðvar 2

FME tilkynnti Baldri að rannsókn í máli hans hefði verið hætt hinn 7. maí 2009 en stjórn eftirlitsins ákvað á fundi sínum hinn 19. júní sama ár að endurvekja rannsóknina vegna nýrra gagna. Baldur er grunaður um að hafa búið yfir upplýsingum um stöðu Landsbankans vegna stöðu sinnar sem nefndarmaður í samráðshópi um fjármálastöðugleika sem markaðurinn hafði ekki. Hann hafi því haft stöðu tímabundins innherja í skilningi laga um verðbréfaviðskipti. Því hefur oft ranglega verið haldið fram í fréttum að hann sé eingöngu grunaður um innherjasvik vegna upplýsinga sem hann fékk á fundi með Alistair Darling, þáverandi fjármálaráðherra Bretlands, í september 2008.

Karl Axelsson, lögmaður á Lex, er verjandi Baldurs. „Við teljum ákæruna ekki standast efnislega og nú fer málið fyrir dómstóla. Það er þýðingarmikið að í því ástandi sem nú ríkir að dómstólar standi í lappirnar og menn njóti þess sannanlega að fá hlutlausa málsmeðferð." Karl skrifaði opið bréf til saksóknara á síðasta ári þar sem hann gagnrýndi málsmeðferðina harkalega, en hann telur að rannsóknin hafi dregist óeðlilega. „Baldur kom í yfirheyrslu í nóvember 2009 og þá var látið í veðri vaka að málið væri á lokasprettinum. Síðan hefur liðið næstum því heilt ár. Maður hlýtur að spyrja sig, er þetta það sem koma skal um þau mál sem embættið ætlar að reka á næstu misserum og árum," segir Karl.

Fyrsta fyrirtaka í málinu verður föstudaginn eftir viku í Héraðsdómi Reykjavíkur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×