Glamour

Bakvið töldin í frægasta tískupartýi í heimi

Ritstjórn skrifar
Anna Wintour
Anna Wintour
Flestir sem hafa áhuga á tísku og frægu fólki þekkja Met Gala, sem haldið er í New York fyrsta mánudag í maí ár hvert.

Á bakvið þetta fjáröflunarkvöld stendur meðal annars sjálf Anna Wintour, ritsjóri ameríska Vogue. Þangað er boðið öllu þekktasta fólkinu í tísku-og tónlistarheiminum.

Nú er búið að gera heimildarmynd um þessa hátíð sem ber nafnið The first monday in may, og var frumsýnd á Tribecca hátíðinni þann 13. apríl.

Vilja einhverjir meina að þessi mynd sé næsta September Issue, sem sló rækilega í gegn á sínum tíma.






×