Sport

Bakvið tjöldin með Conor og Siver

Conor hefur verið að slá í gegn í Boston síðustu daga.
Conor hefur verið að slá í gegn í Boston síðustu daga. vísir/getty
Aðfararnótt mánudags ætlar Írinn Conor McGregor að enda feril Þjóðverjans Dennis Siver í UFC.

McGregor hefur lofað því að rota Siver á innan við 120 sekúndum. Hann hefur hingað til staðið við sín loforð.

Í aðdraganda hvers bardaga gerir UFC þátt um bardagamenninga þar sem kíkt er á bakvið tjöldin.

Þátturinn um Conor og Siver er kominn og má sjá hann hér að neðan. Hann er stórskemmtilegur. Bardagi þeirra verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsending klukkan þrjú um nóttina.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×