Innlent

Bætir hressilega í úrkomuna í nótt

Birgir Olgeirsson skrifar
Fólk ætti að gæta að því að vatn eigi greiða leið að niðurföllum.
Fólk ætti að gæta að því að vatn eigi greiða leið að niðurföllum. Vísir/Anton
Mælar Veðurstofu Íslands hafa sýnt jafnt og þétt úrkomu upp á fimm millimetra að meðaltali á klukkustund í allan dag en eftir klukkan fjögur  í nótt má mögulega búast við því að það muni bæta hressilega í rigninguna. 

„Það mun bæta hressilega í úrkomuna í nótt, um fjögur leytið, og suðvesturhornið verður fyrir því, einnig svæðið frá Mýrdalsjökli, norður að Snæfellsnesi og alveg undir sunnanverða Vestfirði,“ segir vakthafandi veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. 

Almannavarnir og Veðurstofan vöruðu við gífurlegri rigningu fyrr í dag og að búast mætti við vatnavöxtum og skriðuföllum á næstu dögum. Líkt og fyrr segir er talið að það muni bæta töluvert í úrkomuna um fjögur leytið í nótt en það muni taka allt að þrjár til sex klukkustundir að sjá afraksturinn af henni, eða vatnavexti og annað slíkt sem því fylgir. 

Viðbúið er að flóðahætta myndist bæði í litlum ám og lækjum sem og á stærri vatnasviðum, til dæmis í Hvítá í Árnessýslu, Hvítá og Norðurá í Borgarfirði. Jafnframt má búast við aukinni hættu á skriðuföllum á þessum slóðum.„Þetta er bara virkilega góð og mikil rigning,“ segir veðurfræðingurinn. 

Á morgun er hins vegar gott að hafa í huga að vatnið sem fylgir þessari úrkomu eigi greiða leið að niðurföllum og að fólk athugi með gamla glugga og kjallara þar sem vatn getur lekið. 

Horfur næsta sólarhringinn

Suðaustan 8-18 m/s og rigning, hvassast á Snæfellsnesi. Heldur hægari og úrkomulítið norðaustantil. Sunnan og suðaustan 13-20 m/s og mikil rigning í nótt og á morgun en áfram hægari og þurrt norðaustantil. Lægir vestast um tíma um hádegi á morgun. Hiti 5 til 12 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Sunnan og suðaustan 13-20 m/s og mikil rigning en dregur úr úrkomu síðdegis. Suðaustan 8-15 og bjartviði norðan- og norðaustanlands. Hiti 8 til 13 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á föstudag:

Austan og suðaustan 5-13 m/s og léttir víða til, en skýjað og dálítil væta suðaustanlands og vestast. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:

Hæg breytileg átt og bjart með köflum en hiti 4 til 9 stig.

Á sunnudag:

Austlæg átt 5-13, hvassast syðst. Úrkoma suðaustan- og austanlands en þurrt norðan jökla og á Vestfjörðum. Heldur kólnandi.

Á mánudag:

Austanátt og dálítil vætu, en lengst af þurrt fyrir norðan. Hiti 3 til 7 stig.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir vestlæga átt og víða þurrt. Hiti svipaður.

Hér fyrir neðan má fylgjast með úrkomunni á gagnvirku spákorti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×